Víðir Sigurðsson

Viðir Sigurðsson hefur starfað sem kvikmyndatökumaður síðasliðin sautján ár, hér á landi og erlendis. Hann hefur m.a. myndað kvikmyndirnar: Í takt við tímann (Leikstjóri Ágúst Guðmundsson), Köld slóð (Leikstjóri Björn Br. Björnsson), Desember (Leikstjóri Hilmar Oddsson) og Okkar eigin Oslo (Leikstjóri Reynir Lyngdal).

Víðir myndaði einnig sjónvarpsþættina Dagurinn í gær (Leikstjóri Hilmar Oddsson), Venni Páer (Leikstjóri Sævar Guðmundsson), Mannaveiðar (Leikstjóri Björn Br. Björnsson) og Hamarinn (Leikstjóri Reynir Lyngdal).

Auk þess hefur hann myndað fjölda heimilda- og kynningarmynda og hundruð sjónvarpsauglýsinga.

Víðir fékk tilnefningu til Eddu verðlauna fyrir kvikmyndatöku á Kaldri Slóð.

vefsíða: www.vidirsig.com