Stofnað hefur verið félag íslenskra kvikmyndatökustjóra (sk.st. ÍKS). Félagið er að fyrirmynd sambærilegra félaga í nágrannalöndum, s.br. BSC British Cinematographers Society, FNF Foreningen Norske Filmfotografer o.fl. Stofnfélagar eru allir starfandi íslenskir kvikmyndatökustjórar.
Stjórnina skipa:
Bergsteinn Björgúlfsson, forseti,G. Magni Ágústsson, ritari,
Víðir Sigurðsson, gjaldkeri,
Karl Óskarsson,
Óttar Guðnason
Arðrir meðlimir eru
Ágúst Jakobsson
Ari Kristinsson
Birgit Guðjónsdóttir BVK
Egill Egilsson ASC
Sigurður Sverrir Pálsson
ÍKS hefur sótt um aðild að IMAGO, sem eru alþjóðasamtök kvikmyndatökustjóra. Tilgangur félagsins er að auka veg faglegrar kvikmyndunar og halda í hávegum listrænum gildum. Kvikmyndun mun alltaf verða listgrein sem útheimtir innsæi og sköpunargáfu sem engin tæki koma í staðinn fyrir. Félagið hefur opnað heimasíðu þar sem helstu nýjungar og straumar verða á dagskrá.
Would you like to share your thoughts?
Leave a Reply
You must be logged in to post a comment.
0 Comments